Thursday 26 August 2010

Ég er Afríkubúi (Icelandic)

I Am An African by Wayne Visser
Icelandic Translation

Ég er Afríkubúi
Ekki vegna þess að ég fæddist þar
Heldur vegna þess að hjarta mitt slær með Afríku
Ég er Afríkubúi
Ekki vegna þess að hörund mitt sé dökkt
Heldur vegna þess að hugur minn nærist á Afríku
Ég er Afríkubúi
Ekki vegna þess að ég bý á jörð hennar
Heldur vegna þess að Afríka er heimili sálar minnar

Þegar Afríka grætur yfir börnum sínum
Eru kinnar mínar tárum storknar
Þegar Afríka heiðrar sína öldunga
Lúti ég höfði af virðingu
Þegar Afríka syrgir fórnarlömb sín
Mætast hendur mínar í bæn
Þegar Afríka fagnar sínum sigrum
Lifna fætur mínir í dansi

Ég er Afríkubúi
Vegna þess að blár himinn hennar hrífur mig
Og væntingar mínar um framtíð hennar er björt
Ég er Afríkubúi
Vegna þess að fólk hennar fagnar mér sem bróður
Og kennir mér mikilvægi samfélags
Ég er Afríkubúi
Þar sem óspillt náttúra hennar nærir anda minn
Og færir mig nær uppsprettu lífsins

Þegar tónar Afríku hljóma í vindinum
Slær púls minn í takt
Og ég verð að kjarna hljóðsins
Þegar litir Afríku ljóma í skini sólar
Teyga vit mín af regnboga hennar
Og ég verð að litaspjaldi náttúrunnar
Þegar sögur Afríku bergmála í kringum eld
Feta ég stígana
Og ég verð að fótsporum sögunnar

Ég er Afríkubúi
Vegna þess að hún er vagga uppruna okkar
Og nærir forna speki
Ég er Afríkubúi
Vegna þess að hún lifir í skugga heimsins
Og springur út með geislandi birtu
Ég er Afríkubúi
Vegna þess að hún er álfa morgundagsins
Og ég þakka fyrir heilagar gjafir hennar


Creative Commons 2005
Translation by Hanna Thorsteinsdottir 2010

No comments:

Post a Comment